„Mér finnst þetta góð hugmynd,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, um hugmynd Dönsku flugmálasamtakanna þess efnis að lagt verði sérstakt umhverfisgjald á allar flugferðir frá Danmörku.
Fram kemur í frétt RÚV að Guðmundur segir að það þurfi að skoða allar hugmyndir þegar komi að loftslagsmálum.
Það komi til greina að leggja sérstök gjöld á flugfarþega sem miðuð verði við mengun flugleiðar.
Hugmynd Dönsku flugmálasamtakanna snýr að því að gjaldið sé í samræmi við hversu mikil umhverfisáhrif viðkomandi flugferð hefur og búist er við að árlega muni safnast á bilinu 250 - 300 milljónir danskra króna í óháðan loftslagssjóð.