Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur ákveðið að bjóða sig fram til varaformanns Vinstri grænna á landsfundi flokksins sem fer fram síðar í mánuðinum.
Guðmundur greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.
Hann hefur verið ráðherra utan þings í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur í rétt tæp tvö ár.
Núverandi varaformaður VG, Edward H. Huijbens, tilkynnti í febrúar að hann hygðist ekki bjóða sig fram til embættis varaformanns.
Fram kemur í færslu Guðmundar að hann hafi alla tíð brunnið fyrir umhverfismálin og að hann vilji halda áfram að vinna að baráttumálum sínum og annarra umhverfis- og náttúruverndarsinna.