Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur afar miklar áhyggjur af innrás Tyrkja í Sýrland. Hann tekur í sama streng og margir innan alþjóðasamfélagsins hafa gert og segir árásina geta orðið til þess að vígamenn íslamska ríkisins fái byr í seglin á ný sem leiði til frekari þjáninga almennra borgara.
„Þörf er á vopnahléi í Sýrlandi, ekki frekari stigmögnun átaka,“ segir utanríkisráðherra á Twitter.
Deeply concerned about the #Turkey military offensive against #Kurds in #Syria, which could reinvigorate ISIS and bring further suffering to civilians. Ceasefire is needed in Syria, not further escalation.
— Guðlaugur Þór (@GudlaugurThor) October 9, 2019
Tyrkneskar hersveitir réðust inn í norðausturhluta Sýrlands í dag þar sem ætlun þeirra er að ráðast gegn Kúrdum sem hafast við á svæðinu. Að minnsta kosti tveir almennir borgarar féllu í loftárásum hersins.
Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segir aðgerðirnar, sem hann kallar „Friðarvorið“, beinast gegn hryðjuverkamönnum á svæðinu í norðurhluta Sýrlands. Ætlunin sé að koma í veg fyrir svæði hryðjuverkamanna rétt við tyrknesku landamærin og að koma á friði á svæðinu.