Fyrri Boeing 737 MAX 8-farþegaþota Icelandair af tveimur er lögð af stað frá Keflavík til Lleida á Spáni. Þotan sem ber heitið Mývatn fór í loftið rétt eftir klukkan klukkan níu og gekk allt að óskum þegar vélin fór í loftið.
Búlandstindur átti að fara í loftið um stundarfjórðungi síðar en tafir hafa orðið á flugtaki hennar.
Flugstjóri um borð í Mývatni er Þórarinn Hjálmarsson og með honum er Guðjón S. Guðmundsson flugmaður. Kári Kárason og Franz Ploder sjá svo um að fljúga Búlandstindi.
Þoturnar hafa staðið hafa ónotaðar á Keflavíkurflugvelli frá því um miðjan mars sökum kyrrsetningar. Þeim verður flogið í ferjuflugi til Lleida þar sem þær verða geymdar við betri aðstæður en á Keflavíkurflugvelli þar til leyfi fæst til að taka þær í notkun á ný.
Alls verður fimm Boeing 737 MAX 8-þotum og einni MAX 9-þotu flogið til Spánar. Upphaflega stóð til að fljúga þotunum til Frakklands um mánaðamótin en ekkert varð úr því vegna leyfismála.
Vélarnar verða geymdar á Spáni þar til leyfi fæst til að taka þær í notkun á ný. Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir í samtali við mbl.is að hinum fjórum þotunum verði flogið út fljótlega, allar flugheimildir eru komnar og veðurspáin er góð.
Flugmenn Icelandair fljúga vélunum til Spánar og verða tveir flugstjórar um borð í hverri vél og verða þeir sömuleiðis þeir einu um borð í vélinni. Evrópska flugöryggisstofnunin, EASA, setur ítarleg skilyrði sem Icelandair þarf að uppfylla fyrir framkvæmd flugs vélanna, m.a. varðandi flughæð, flughraða og þjálfunarkröfur og reynslu viðkomandi flugstjóra.