Nýr framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi er Ólafur Þór Ævarsson læknir. Stöðunefnd embættis landlæknis hefur metið Ólaf hæfan til starfsins. Herdís Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri endurhæfingarsviðs, er settur forstjóri Reykjalundar á meðan auglýst er eftir nýjum forstjóra. Hún sinnir sínu fyrra starfi samhliða forstjórastarfinu til að byrja með. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi sem haldinn var í hádeginu á Reykjalundi í dag. Fámennt var á fundinum og salurinn nánast tómur. Annað var upp á tengingnum á föstudaginn í síðustu viku. Sveinn Guðmundsson, formaður SÍBS, er ekki lengur starfandi forstjóri Reykjalundar heldur sem fyrr segir Herdís þar til ráðið verður í stöðuna.
„Fréttir um starfslokin sköpuðu mikla reiði og sorg meðal starfsmanna Reykjalundar í ljósi langs starfsaldurs og mikilsverðs framlags þessara tveggja einstaklinga til starfseminnar í gegnum árin. Ljóst er að betur hefði mátt takast til við þær aðgerðir og með því koma í veg fyrir þann óróa sem þær sköpuðu. Stjórn SÍBS vill nota þetta tækifæri og biðja hlutaðeigandi velvirðingar á því hvernig málin þróuðust.“ Þetta segir í tilkynningu. Enn fremur mun stjórn SÍBS leitast við að draga lærdóm af málinu og taka tillit til þeirra ábendinga sem komið hafa fram í tengslum við það.
Ólafur Þór tekur jafnframt við sæti í framkvæmdastjórn Reykjalundar. Hana skipa Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri, Lára M. Sigurðardóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar, Ólafur Þór Ævarsson, framkvæmdastjóri lækninga, Herdís Gunnarsdóttir forstjóri, Helgi Kristjónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs.