Sveinn Andri Sveinsson, skiptastjóri þrotabús EK1923, þarf að endurgreiða þrotabúinu alla þá þóknun sem hann hefur ráðstafað til sín sjálfs af eignum búsins þar sem hann skorti til þess heimild. Þetta kemur fram í ákvörðun héraðsdóms vegna aðfinnslu hluta kröfuhafa í málinu. Samtals er um að ræða um 100 milljónir króna. Ákvörðunin er ekki kæranleg til æðra dómstigs.
Kröfuhafarnir fóru fram á að Sveinn Andri myndi endurgreiða allan kostnað sem hann hefur greitt sér auk þess að héraðsdómur myndi víkja honum sem skiptastjóra.
Héraðsdómur segir í ákvörðun sinni vinnubrögð Sveins Andra vera aðfinnsluverð þegar kemur að því að upplýsa um ætlaðan kostnað í málinu, en rann hefur rukkað 40 þúsund krónur á klukkustund fyrir skiptastörf stærstan hluta málsins, auk virðisaukaskatts, samtals 49.600 krónur. Hins vegar þyki ekki rétt að víkja honum frá, þar sem vinna við skiptabúið sé á lokametrunum.
Skiptakostnaður búsins er í heild talinn nema um 130 milljónum króna, en Sveinn Andri gerði ekki athugasemdir við þá upphæð við meðferð málsins. Sundurliðaður skiptakostnaður liggur hins vegar ekki fyrir miðað við stöðu málsins í dag, en miðað við lok apríl í fyrra hafði búið greitt 99,4 milljónir í kostnað, þar af 81,7 milljónir í skiptaþóknun til skiptastjóra. Voru eignir búsins á sama tíma 104 milljónir. Hins vegar var þá eftir að fá skorið úr stærsta dómsmáli búsins fyrir Landsrétti, en héraðsdómur hafði fallið þrotabúinu í vil og er þar um að ræða 222 milljónir auk vaxta.
Síðan þá hefur talsverður málskostnaður fallið til. Heiðar Ásberg Atlason, lögmaður þeirra kröfuhafa sem gerðu athugasemdir, segir í samtali við mbl.is að miðað við tímaskýrslur sem lagðar hafi verið fram fyrir dómi sé ljóst að greiðslur til Sveins Andra séu ekki undir 100 milljónum og heildarskiptakostnaður búsins líklega um 130 milljónir.
Í ákvörðun héraðsdóms fer dómarinn Helgi Sigurðsson yfir að málskostnaður þrotabúsins sé alla vega orðinn 65,7 milljónir í tengslum við þrjú dómsmál þrotabúsins. Hins vegar sé dæmdur málskostnaður í tveimur minni málunum 6,9 milljónir. Stærsta málið á sem fyrr segir enn eftir að taka fyrir í Landsrétti í nóvember. „Skiptastjóri er ekki bundinn af þessum dæmda málskostnaði, en hann gefur þó einhverjar vísbendingar um afstöðu dómstóla til umfangs máls,“ segir í ákvörðuninni.
Helstu aðfinnslur sem dómarinn gerir tengjast þó því að Sveinn Andri hafi aldrei upplýst kröfuhafa um áætlaðan skiptakostnað eða tímagjald sitt, fyrr en eftir á. „Þó að skiptastjóri hafi gert grein fyrir fyrirhuguðum riftunarmálum á skiptafundum svo og einstökum ráðstöfunum, þá er aðfinnsluvert að hann upplýsti aldrei um ætlaðan kostnað vegna þeirra að öðru leyti en því sem fram kemur á yfirlitum eftir að hann hafði unnið verkið og greitt sér þóknun.“
Þá gerir dómarinn athugasemdir við að kröfuhafar hafi ekki getað gert sér grein fyrir hversu tímafrekur málareksturinn yrði og þar af leiðandi hversu kostnaðarsamur. „Þá er aðfinnsluvert með hvaða hætti staðið var að kynningu skiptastjóra á tímagjaldi og tímafjölda einstakra verkefna.“ Dómarinn tekur ekki afstöðu til hvað teljist hæfileg þóknun skiptastjóra, en vísar þó til dóms Hæstaréttar frá árinu 2017 þar sem miðað var við 20 þúsund króna tímagjald í gjafsóknarþóknun.
Segir í ákvörðuninni að þar sem ekki hafi legið fyrir heimild kröfuhafa fyrir ráðstöfun greiðsla til skiptastjóra beri honum að endurgreiða alla upphæðina til búsins. „Fallist á að skiptastjóri endurgreiði þóknun sem hann hefur ráðstafað til sín af eignum búsins, enda skorti hann heimildir til þeirrar ráðstöfunar.“ Skal endurgreiðslan fara fram ekki síðar en 22. nóvember, en þá fer fram aðfinnslufundur skiptabúsins, en þar verður tekin ákvörðun um framhald skiptanna.
Mikið hefur gengið á við skipti á búi EK1923 og hafa fjölmörg dómsmál sprottið upp vegna þess. Samtals gerðu 10 kröfuhafar athugasemdir við starfshætti Sveins Andra, en þeir eru samtals með um 11% krafna í búið. Kröfuhafar fyrir 75% krafna höfðu hins vegar fyrr á árinu lýst því yfir að þeir vildu halda áfram með störf búsins og málaferli.
EK1923 er þrotabú heildsölunnar Eggerts Kristjánssonar ehf. og var keypt árið 2013 af Skúla Gunnari Sigfússyni, jafnan kenndum við Subway. Síðar varð félagið birgir fyrir Stjörnuna sem er rekstrarfélag Subway. Félagið fór síðar í þrot og höfðaði Sveinn Andri nokkur mál gegn Skúla og félögum tengdum honum.
Þannig var Stjarnan dæmd til að greiða EK1923 15 milljónir í Landsrétti í desember eftir að Landsréttur rifti framsali á kröfu EK1923 á hendur íslenska ríkinu til Stjörnunnar. Í sama mánuði var Skúli dæmdur til að greiða 2,3 milljónir í skaðabætur fyrir að hafa gefið fyrirmæli um greiðslu skuldar EK1923 þegar félagið var orðið ógjaldfært. Mátti ráða að Skúli hefði viðskiptalega hagsmuni af því uppgjöri.
Þá var annað félag í eigu Skúla, Sjöstjarnan ehf., einnig dæmt í desember til að greiða annars vegar 223 milljónir eftir að héraðsdómur rifti greiðslu félagsins og hins vegar 21 milljón. Uppreiknað með vöxtum nema kröfurnar rúmlega 400 milljónum. Þetta er stóra málið sem bíður meðferðar Landsréttar í nóvember.
Í umfjöllun mbl.is um kvörtun kröfuhafanna í byrjun ársins var haft eftir Sveini Andra að þeir kröfuhafar sem gerðu athugasemdir væru litlir kröfuhafar í búið og að í einu tilfelli kröfuhafa sem deilt sé um hvort eigi í raun kröfu á félagið. Þar var um að ræða Stjörnuna, félag í eigu Skúla, en Landsréttur komst síðar á þessu ári að því að Stjarnan væri óumdeilt kröfuhafi í búið.
Þeir kröfuhafar sem upphaflega gerðu athugasemd við starfshætti Sveins Andra voru Stjarnan, Sláturfélag Suðurlands, Mjólkursamsalan og BBA legal. Á síðari stigum bættust við Íslenska gámafélagið, DHL Express, Tandur, Reykjagarður, AG Dynamics og 365 miðlar.
Í ákvörðun héraðsdóms er vísað í vörn Sveins Andra í málinu þar sem hann kallar BBA legal „gervikröfuhafa“ sem eigi aðeins 0,3% kröfu í búið og sé fyrst og fremst notað til að tryggja Skúla aðkomu að skiptafundum og gæta hagsmuna hans. Þeir kröfuhafar sem gera athugasemdir og hafi bæst við á síðari stigum eigi það sammerkt að Heiðar Ásberg, sem er lögmaður Stjörnunnar, hafi tekið yfir fyrirsvar krafnanna. Segir Sveinn Andri það vera hagsmunaárekstur af versta toga að lögmaður félags sem þrotabúið sæki á starfi svo fyrir hluta kröfuhafa á sama tíma.