Staðfesting á að mannréttindabrot séu framin daglega

„Ljóst er að fullnægjandi lagaheimildir eru ekki til staðar í …
„Ljóst er að fullnægjandi lagaheimildir eru ekki til staðar í íslenskri löggjöf til að taka ákvarðanir gagnvart frelsissviptum einstaklingum á geðheilbrigðisstofnunum sem geta falið í sér inngrip í réttindi sem varin eru í stjórnarskrá og mannréttindasáttmálum,“ segir í skýrslu umboðsmanns Alþingis þar sem farið var á þrjár lokaðar deildir geðsviðs Landspítalans á Kleppi í Reykjavík. mbl.is/Hari

Úttekt umboðsmanns Alþingis á þremur lokuðum geðdeildum Landspítalans er staðfesting á því að mannréttindabrot eru framin á hverjum degi á einstaklingum með geðrænan vanda. 

Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Geðhjálpar um skýrslu umboðsmanns. Í skýrslunni, sem er hluti af OPCAT-eftirliti með stöðum þar sem frelsissviptir dvelja, segir að starfsfólk geðheilbrigðisstofnana hafi ekki fullnægjandi heimild í lögum til að taka ákvarðanir gagnvart frelsissviptum einstaklingum á geðheilbrigðisstofnunum sem geta falið í sér inngrip í réttindi sem eru stjórnarskrárvarin. 

Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.

Athugunin var framkvæmd á grundvelli OPCAT-eftirlits, sem er valfrjáls bókun við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingum.

Með frelsissviptingu er átt við hvers konar fangelsun, vistun eða gæslu, samkvæmt fyrirmælum eða að undirlagi yfirvalda, á opinberri stofnun eða heimili á vegum einkaaðila, þar sem hann er ekki frjáls ferða sinna.

„Landssamtökin Geðhjálp vilja árétta að vart líður sá dagur á Íslandi að fólk með geðrænan vanda sé ekki frelsissvipt, svipt ákvörðunarrétti, nauðungarvistað og lyfjum sprautað í það með valdi og í framhaldinu síðan þvingað til að taka lyf,“ segir í ályktun Geðhjálpar. 

Samtökin hafa um árabil bent á að mannréttindabrot sem þessi séu framin í skjóli gildandi lögræðislaga þar sem túlkanir hafi verið þeim lögræðissvipta mjög í óhag. „Vonir hafi verið bundnar við að með innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, þar sem hvers kyns þvingun eða nauðung á grundvelli fötlunar er óheimil, myndu þessi mannréttindabrot taka enda,“ segir í ályktuninni. 

Þar segir jafnframt að með skýrslunni hafi umboðsmaður úrskurðað að lagaheimildir séu ekki fyrir hendi fyrir þeim þvingunum sem beitt er í dag.

Landssamtökin Geðhjálp krefjast þess að stjórnvöld bregðist við án tafar í ljósi þeirra ábendinga, sem koma fram í skýrslunni. Þá fara samtökin fram á að löggjöfin verði endurskoðuð í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert