Samtökin Ísland-Kúrdistan stóðu fyrir samstöðugöngu í dag frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíg og þaðan á Austurvöll. Héldu göngumenn á skiltum og borðum til stuðnings málstað Kúrda.
Kúrdar í Sýrlandi hafa undanfarið verið í miðju alþjóðlegs deiluefnis eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ákvað að draga hluta herliðs Bandaríkjamanna frá svæðum við landamæri Sýrlands og Tyrklands. Í kjölfarið gerðu Tyrkir árás inn á sýrlenska svæðið, en þeir líta á hersveitir Kúrda í Sýrlandi sem hryðjuverkamenn og hafa áhyggjur af því að þeim verði beitt gegn Tyrklandi. Kúrdar hafa lengi viljað stofna sjálfstætt ríki og hafa gert kröfu um landsvæði í Tyrklandi, Írak og Íran auk Sýrlands.
Töldu Kúrdar að með ákvörðun sinni hefðu Bandaríkjamenn svikið sig og gerðu í kjölfarið samkomulag við sýrlensk stjórnvöld. Þótt tilkynnt hafi verið um vopnahlé á fimmtudaginn sem gildir í 120 klukkustundir, þá var það gert með þeim fyrirvara að Kúrdar myndu taka herlið sitt til baka af svæði við landamærin sem Tyrkir skilgreina sem öryggissvæði.