Tvö þeirra sem bjargað var úr brennandi íbúð í Mávahlíð í Hlíðahverfinu í Reykjavík aðfaranótt miðvikudags eru mjög alvarlega slösuð. Tveimur körlum og einni konu, öllum á þrítugsaldri, var bjargað úr brunanum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá þessu í tilkynningu.
Fram kemur að talið sé að eldurinn hafi kviknað í potti á eldavélarhellu, en lögreglan segist ekki geta tjáð sig frekar um rannsókn málsins.
Eldurinn kom upp í kjallara og voru efri hæðir rýmdar meðan slökkvistarf stóð yfir en íbúar þar fengu að fara aftur í íbúðir sínar er slökkvistarfi lauk.
Mikill reykur var í kjallaranum þegar slökkvilið kom á vettvang og eldur sjáanlegur. Slökkvistarf gekk greiðlega og lauk reykræstingu á fjórða tímanum um nóttina.