Vegurinn opinn á Suðausturlandi

Vetrarfærð er fyrir norðan, austan og vestan.
Vetrarfærð er fyrir norðan, austan og vestan. mbl.is/Rax

Búið er að opna veginn á Suðurlandi milli Núpsstaðar og Hafn­ar í Hornafirði en honum var lokað síðdegis í gær því bálhvasst var á þessum slóðum. Enn er nokkuð stífur vindur undir Vatnajökli. Greiðfært er að mestu á sunn­an­verðu landinu. Þetta kemur fram á veg Vegagerðarinnar. 

Annars staðar á landinu eru helstu aðalleiðir færar en víða hálkublettir. Vetrarfærð, élja­gang­ur og skafrenn­ing­ur er á norðan­verðu land­inu og Víkurskarð er enn ófært. Á Vestfjörðum er enn ófært í Árneshrepp og Hrafnseyrarheiðin er ófær en til stendur að skoða aðstæður þar í dag. Þæfingsfærð er á þröskuldum og þungfært á Klettshálsi.

Á Austurlandi eru helstu leiðir greiðfærar en upplýsingar vantar þó um Vatnsskarð eystra og nokkra sveitavegi. Á Vesturlandi eru hálkublettir en sumstaðar ívið meiri hálka s.s. á Bröttu brekku og Svínadal.   

Gul viðvör­un er í gildi fyr­ir Suðaust­ur­land fram á há­degi en vind­hraði er 18 til 25 m/​s og hviður geta farið yfir 40 m/​s. Sums staðar sand­fok eða grjót­fok og lé­legt skyggni. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá laus­um mun­um.

Fram kem­ur á vef Veður­stof­unn­ar að það muni draga úr vindi um allt land upp úr há­degi og það verði úr­komu­lítið á sunn­an­verðu land­inu, ann­ars él. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert