Forsætisráðherra hefur vísað máli vegna ætlaðs upplýsingaleka frá Seðlabankanum til RÚV til lögreglu. Meintur leki átti sér stað árið 2012 í tengslum við húsleit í Samherja og kann að fela í sér refsivert brot. Þetta kemur fram í kvöldfréttum stöðvar tvö.
Framkvæmdastjóri Seðlabankans var í samskiptum við fréttamann á RÚV í um mánuð áður en ráðist var í húsleit í Samherja árið 2012. Þegar húsleitin fór fram voru fréttamenn frá Rúv þegar mættir á staðinn.
Í viðtali við Þorstein Má Baldvinsson, forstjóra Samherja, fullyrðir hann að þetta hafi verið aðför að fyrirtækinu og þaulskipulagt.