Stjórn SÍBS samþykkti á fundi sínum í dag að skipuð verði þriggja manna starfsstjórn yfir rekstur Reykjalundar endurhæfingarmiðstöðvar SÍBS. Þetta kemur fram í yfirlýsingu SÍBS.
„Starfsstjórnin verður skipuð yfir Reykjalund og mun vinna að málefnum stofnunarinnar án aðkomu stjórnar SÍBS. Starfsstjórnin fær einnig það hlutverk að vinna tillögur um rekstrargrundvöll Reykjalundar til framtíðar. Framkvæmdastjórn Reykjalundar fer eftir sem áður með daglegan rekstur stofnunarinnar.“ Segir í tilkynningu.
Á haustþingi SÍBS árið 2018 var ákveðið að hefja vinnu við endurskoðun stjórnskipulags samtakanna. Tekið er fram að stjórnin telji mikilvægt að ljúka endurskoðuninni með framtíð Reykjalundar í huga.
Fyrr í dag greindu allir níu sálfræðingarnir sem starfa á Reykjalundi að allir í framkvæmdastjórn Reykjalundar þurfi að víkja og stjórn SÍBS verði að hætta afskiptum af starfsemi Reykjalundar áður en meiri skaði hlýst af. Sálfræðingarnir hafa allir velt því fyrir sér að segja upp störfum.
Þá hafa 8 af 12 læknum Reykjalundar sagt starfi sínu lausu að undanförnu.