Tíu ára McDonald’s hamborgari sem nú er til sýnis á Snotru-hosteli á Suðurlandi, hefur vakið heimsathygli. Borgarinn hefur ekkert myglað á þeim áratug sem liðinn er frá því hann var keyptur sama dag og skyndibitakeðjunni frægu var lokað hér á landi 31. október 2009.
Borgarinn hefur nú verið geymdur, ásamt skammti af frönskum kartöflum, í heilan áratug og eru það helst umbúðir matarins sem farnar eru að láta á sér sjá. Hamborgarinn hefur vakið mikla athygli og hafa erlendir miðlar á borð við Washington Post, BBC, AFP og Fox News fjallað um borgarann sem rotnar ekki.
Borgarinn fór að vekja töluverða athygli þegar mbl.is komst á snoðir um hann 2015. Þá greindi Grapevine frá borgaranum stuttu síðar og komst málið þá á flug um hinn enskumælandi heim, eins og fram kemur í umfjöllun RÚV um McDonalds á Íslandi.
„Ég var búinn að heyra þessa þjóðsögu um að McDonald's-hamborgarar mygluðu aldrei. Mig langaði hreinlega að athuga hvort þetta væri rétt eða ekki,“ sagði Hjörtur Smárason kaupandi borgarans í samtali við mbl.is það ár.
Fylgjast má með einstaklega hægri rotnun borgarans fræga í vefmyndavél á vegum Snotru Hostels.