Aðalbjörg fulltrúi Íslands í Madríd

Aðalbjörg Egilsdóttir, ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði loftslagsmála, …
Aðalbjörg Egilsdóttir, ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði loftslagsmála, mun sækja Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Madríd 2.-13. desember og taka þátt í störfum þess í umboði íslenskra ungmenna. Ljósmynd/Aðsend

Aðalbjörg Egilsdóttir var kjörin ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði loftslagsmála á fulltrúaráðsfundi Landssambands ungmennafélaga (LUF), sem fram fór í Hinu húsinu í kvöld. 

Alls voru fimm fulltrúar aðildarfélaga LUF í framboði á fundinum. Aðalbjörg, fulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands, var kjörin með meirihluta atkvæða að því er segir í tilkynningu. 

Aðalbjörg kemur til með að sækja Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Madríd 2.-13. desember og taka þátt í störfum þess í umboði íslenskra ungmenna. Þetta er í annað sinn sem Ísland skipar slíkan fulltrúa, en Esther Hallsdóttir var kjörin ungmennafulltrúi á sviði mannréttinda í ágúst síðastliðinn. 

Í framboðsræðu sinni talaði Aðalbjörg fyrir mikilvægi endurheimtar vistkerfa og að ungu fólki sé hleypt að ákvarðanatöku um loftslagsmál. 

„Ég er þakklát fyrir að fá vettvang til að nýta þekkingu mína á umhverfismálum í þágu ungs fólks og legg áherslu á að rödd okkar ungmenna verði áberandi á ráðstefnunni. Ég átta mig vel á þeim hindrunum sem eru í vegi fyrir árangri á sviði loftslagsmála og að mörgu leyti hvaða leiðir standa til boða í baráttunni fyrir betri heimi. Til þess að ná þeim markmiðum sem ríkisstjórnir heimsins hafa sett sér þarf kúvendingu í loftslagsmálum og mun ég berjast fyrir því að hagsmunir alls ungs fólks verði í fyrirrúmi.”

Aðalbjörg starfar hjá Náttúrustofu Vesturlands og er menntaður líffræðingur. Þá situr Aðalbjörg í Stúdentaráði og er forseti Umhverfis- og samgöngunefndar ráðsins.
 

Skipun ungmennafulltrúans og þátttaka hans á ráðstefnunni er samstarfsverkefni Landssambands ungmennafélaga, félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Umhverfisráðuneytisins, sem kostar verkefnið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert