„Við erum rétt að setja okkur inn í hlutina. Við finnum jákvæða strauma og erum bjartsýn á að ró komist á vinnustaðinn,“ segir Óskar Jón Helgason sjúkraþjálfari og einn af þremur einstaklingum sem situr í starfsstjórn Reykjalundar sem heilbrigðisráðherra skipaði í vikunni til að tryggja faglegt starf og að bæta starfsandann á Reykjalundi.
Mikil óánægja hefur verið á Reykjalundi frá því sumar vegna skipulagsbreytinga sem og uppsagna fyrrverandi forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga á Reykjalundi fyrir nokkrum mánuðum. Í kjölfarið sögðu flest allir læknar upp störfum.
Óskar segir að faglegt starf á Reykjalundi hafi þegar verið tryggt. Vinnan framundan leggst vel í Óskar. Síðustu daga hefur stjórnin rætt við lækna sem hafa sagt upp störfum og „þau samtöl lofa góðu,“ segir Óskar.
Starfsstjórnin hefur fullt sjálfstæði og óskorað umboð til athafna við stjórnun stofnunarinnar meðan unnið verður að því að aðgreina rekstur endurhæfingarþjónustu Reykjalundar frá annarri starfsemi og eignum SÍBS.
Óskar þekkir nokkuð vel til starfsemi Reykjalundar en hann starfaði í sjö ár þar. Hann hefur einnig unnið á Heilsustofnuninni í Hveragerði, í Heilsuborg og starfar nú sem sérfræðingur hjá Virk starfsendurhæfingarsjóði.