Hinn árlegi Ljósafoss niður hlíðar Esjunnar fór fram síðdegis í gær þegar um 400 manns komu saman og lýstu upp fjallshlíðarnar til að vekja athygli á mikilvægi endurhæfingar krabbameinsgreindra.
Meðal þeirra sem gengu voru Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og atvinnumálaráðherra, og flokkssystir hans, Þórunn Egilsdóttir, sem sótt hefur þjónustu í Ljósið. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis. Áður en gengið var upp hituðu Ari Eldjárn og Biggi Sævars upp og skemmtu göngufólki.
Erna Magnúsdóttir, forstöðumaður Ljóssins, segir í tilkynningu: „Við fengum dásamlegt veður þó það hafi komið hressandi él rétt áður en við lögðum í hann. Mætingin var mjög góð, við eigum vart orð yfir öllum stuðninginum og velvildinni. Alveg hreint dásamlegt að fagna 10. Ljósafossinum okkar í þessum flotta félagsskap.“
Í hverjum mánuði nýta yfir 450 manns þjónustu Ljóssins sem er endurhæfingar-og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra.