Félag háskólakvenna hefur valið Háskólakonu ársins 2019, en fyrir valinu varð dr. Margrét Vilborg Bjarnadóttir.
Hún er aðstoðarprófessor í aðgerðagreiningu og tölfræði við Robert H. Smith viðskiptaháskólann í Maryland í Bandaríkjunum og stofnandi sprotafyrirtækisins PayAnalytics.
Margrét Vilborg lauk BS gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 2001 og hlaut þá hæstu einkunn sem skráð hafði verið, og lauk svo doktorsgráðu frá MIT í Cambridge 2008.
Margrét Vilborg hefur bæði fengist við kennslu og fræðiskrif auk þess sem hún er stofnandi sprotafyrirtækisins PayAnalytics þar sem þróuð hefur verið hugbúnaðarlausn sem gerir stofnunum og fyrirtækjum kleift að framkvæma launagreiningar, skoða áhrif launaákvarðana og ráðast á launabil kynjanna með aðgerðaráætlun og kostnaðargreiningu. Hugbúnaðurinn gerir einnig mögulegt að halda launabilinu lokuðu með launatillögum fyrir nýráðningar og þá sem færast til í starfi.