Íslenskur skipstjóri hefur verið handtekinn af lögreglunni í Namibíu vegna gruns um ólöglegar veiðar undan ströndum Namibíu.
Skipstjórinn, Arngrímur Brynjólfsson, var leiddur fyrir dómara í gær ásamt öðrum skipstjóra sem einnig var handtekinn.
Þetta kemur fram á vef Namibian Broadcasting Corporation (NBC).
Að sögn RÚV starfaði Arngrímur um árabil hjá Samherja.
Þrír til viðbótar hafa verið handteknir grunaðir um ólöglegar veiðar undan ströndum Namibíu á undanförnum tveimur mánuðum, að því er kemur fram á vefsíðunni.
Arngrímur var einn af skipstjórum frystitogarans Baldvins Þorsteinssonar EA í þau tíu ár sem skipið var í eigu Samherja.