Tvö fyrirtæki bjóða í ljósleiðarakerfi Hvalfjarðarsveitar sem sveitarfélagið auglýsti til sölu. Míla ehf. býðst til að greiða tæpar 84 milljónir fyrir kerfið og Gagnaveita Reykjavíkur rúmar 49 milljónir.
Hvalfjarðarsveit byggði upp ljósleiðarakerfi á eigin kostnað í öllu sveitarfélaginu á árunum 2013 til 2015. Kostaði framkvæmdin um 370 milljónir króna, á þágildandi verðlagi.
Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri segist í samtali við Morgunblaðið ánægð með að hafa fengið tvö tilboð í kerfið.