Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði á níunda tímanum í gærkvöldi bíl sem mældist á 116 km hraða á Kringlumýrarbrautinni.
Bílstjórinn reyndist ekki vera nema 17 ára gamall og var málið afgreitt með aðkomu móður hans og tilkynningu til barnaverndar.
Þá stöðvaði lögregla sex ökumenn víðs vegar um borgina í gærkvöldi og nótt sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna.