Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir eiganda einmana silfurlitaðrar bílhurðar sem kræktist í flatvagn sem lagt er í Grindavík.
Fram kemur í færslu lögreglustjórans á Suðurnesjum á Facebook að litlar skemmdir séu á flatvagninum. „En miðað við að hurð ökutækisins, sem ók á hann, er föst á vagninum má leiða líkur að því að skemmdirnar séu öllu meiri þar,“ segir í færslunni.
Lögreglan óskar eftir vitnum að atburðinum en bendir eiganda bílhurðarinnar á að hann geti nálgast hana á lögreglustöðinni við Hringbraut í Keflavík.