Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa sett upp áhrifaríka innsetningu í Hörpu þar sem hægt er að stíga inn í aðstæður sem eru Íslendingum framandi. Byssumaður miðar AK-47 árásarriffli á sitjandi barn en vegfarendur geta gengið í milli.
Verið er að vekja athygli á; Þitt nafn bjargar lífi, stærstu alþjóðlegu mannréttindaherferð samtakanna þar sem undirskriftum er safnað í tíu áríðandi málum barna og ungs fólks undir 25 ára aldri sem sæta mannréttindabrotum víðs vegar um heiminn.
Hægt er að lesa um málin hér.
Sýningin er unnin í samstarfi við auglýsingatofuna Kontor, margmiðlunarfyrirtækið Gagarín og kvikmyndafyrirtækið Falcor.
Leiðrétting: Nú er sýningin komin í Kringluna og verður þar til 12. desember.
Í fyrra söfnuðu samtökin samtals 5.911.113 undirskriftum og bréfum í átakinu. Þeir sem fengu stuðning voru m.a. Atena Daemi. Hún var fangelsuð fyrir að dreifa bæklingum þar sem dauðarefsing í Íran var harðlega gagnrýnd og hefur þurft að þola líkamlegt ofbeldi á meðan hún hefur setið í fangelsi. Hún þurfti nauðsynlega á sértækri læknisþjónustu að halda og á vef Amnesty kemur fram að 700 þúsund undirskriftir einstaklinga um heim allan náðu að knýja fram þá meðferð sem hún þurfti á að halda.
Gulzar Duishenova hefur lengi barist fyrir réttindum fólks með fötlun í Kirgistan. Í mars 2019 fékk hún umbun erfiðis síns þegar Kirgistan undirritaði loks samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Hér er hægt að lesa um hvernig undirskriftirnar skipta máli.