Ætla að hrista upp í hlutunum

Landspítali — háskólasjúkrahús við Hringbraut.
Landspítali — háskólasjúkrahús við Hringbraut. mbl.is/Ómar Óskarsson

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir að til standi að hrista aðeins upp í hlutunum á Landspítalanum á næstu dögum. 11 nýir forstöðumenn spítalans voru ráðnir til starfa í liðinni viku. Þetta er meðal þess sem kemur fram í föstudagspistli forstjórans.

„Í byrjun desember ætlum við að hrista aðeins upp í hlutunum og halda níu snarpa starfsmannafundi á öllum stærstu starfsstöðvum Landspítala. Á fundunum ætla ég að kynna nýlegar breytingar á skipuriti, skipulagi og stjórnendum spítalans og greina frá fjölbreyttum hagræðingaraðgerðum til að bæta fjárhagsstöðu okkar.

Að endingu hyggst ég fjalla stuttlega um hina skýru framtíðarsýn og stefnu Landspítala og svara að endingu spurningum. Fundirnir eru opnir öllu starfsfólki eins og húsrými og verkefnastaða hvers og eins leyfir,“ segir Páll. 

11 nýir forstöðumenn voru ráðnir á Landspítalann í vikunni. Forstöðumennirnir hefja störf ýmist nú 1. desember eða 1. janúar 2020.

„ Forstöðumönnum er ætlað að samhæfa flókin verkefni í framlínu spítalans; þjónustu við sjúklinga, vísindi og menntun. Hér er um umfangsmikil stjórnunarstörf að ræða og þau munu styrkja samhæfingu, samstarf og heildaryfirsýn innan spítalans. Fram undan er spennandi tímabil breytinga og þróunar og ég finn að það er hugur í mannskapnum. Reynslan af nýrri framkvæmdastjórn nú frá októberbyrjun er sömuleiðis mjög góð og takturinn í helmingi minni framkvæmdastjórn er allur kvikari og skilvirkari en áður.“ 

Í samræmi við nýtt skipurit sem tók gildi 1. október 2019 hefur verið gengið frá ráðningu ellefu forstöðumanna þjónustukjarna á Landspítala. 

Birna Helgadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður aðfanga og umhverfis

Birna er með BSc-próf í líffræði og einnig með meistaragráðu í umhverfisfræði og diplóma í opinberri stjórnsýslu auk þess sem hún leggur stund á MBA-nám við Háskólann í Reykjavík. Hún hefur starfað á Landspítala frá 2012, við umhverfismál og verkefnastjórnun, en áður starfaði hún m.a. sem ráðgjafi hjá Alta og gæðastjóri hjá Medcare. 

Guðný Valgeirsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður öldrunarþjónustu

Guðný lauk prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1994 en var áður sjúkraliði frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Einnig lauk Guðný MBA-prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2012. Guðný hefur meðal annars starfað sem markaðsfulltrúi hjá Vistor í 10 ár og frá árinu 2016 hefur hún gegnt stjórnunarstörfum á Landspítala, nú síðast sem deildarstjóri á dag-, göngu- og samfélagsdeild á Landakoti.

Jón Magnús Kristjánsson hefur verið ráðinn forstöðumaður bráðaþjónustu 

Jón Magnús útskrifaðist úr læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og lauk sérnámi í bráðalækningum við háskólasjúkrahúsið í Lundi. Hann leggur nú stund á MBA-nám við Háskólann í Reykjavík samhliða starfi. Jón Magnús hefur starfað á Landspítala samfellt frá árinu 2009 og gegnt starfi yfirlæknis bráðalækninga frá árinu 2016.

Karl Konráð Andersen hefur verið ráðinn forstöðumaður hjarta- og æðaþjónustu 

Karl útskrifaðist úr læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1987 og lauk sérnámi í lyflækningum og hjartasjúkdómafræði frá Sahlgrenska-háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg árið 1995 og doktorsprófi árið 1997 frá Gautaborgarháskóla. Hann hefur starfað á Landspítala samfellt frá 1997 og sem yfirlæknir hjartagáttar frá 2013. Hann er einnig prófessor í hlutastarfi við læknadeild Háskóla Íslands.

Linda Kristmundsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður kvenna- og barnaþjónustu 

Linda lauk prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1990 og meistaragráðu í geðhjúkrun með áherslu á geðhjúkrun barna og unglinga árið 1998. Enn fremur lauk hún meistaraprófi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands árið 2006. Hún hefur starfað á Landspítala frá 1990 og gegnt ýmsum stjórnunarstörfum, síðast starfi framkvæmdastjóra kvenna- og barnasviðs frá 2016.

Margrét Guðjónsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður skurðlækningaþjónustu 

Margrét útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1987 og lauk diplómanámi í heilsu- og sjúkrahússtjórnun frá háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg árið 1995.  Einnig hefur hún lokið diplómanámi í bæði lýðheilsufræðum og opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Margrét starfaði sem forstjóri Heilsugæslunnar á Akureyri í tólf ár  og þar áður í þrjú ár sem hjúkrunarforstjóri sömu stofnunar. Hún hefur undanfarin sex ár starfað sem verkefnastjóri og staðgengill framkvæmdastjóra skurðlækningasviðs á Landspítala. 

Maríanna Garðarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður rannsóknarþjónustu

Maríanna lauk kandídatsprófi í læknisfræði árið 1999 og sérfræðinámi í myndgreiningu frá  Sahlgrenska-háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg árið 2007. Frá þeim tíma hefur Maríanna starfað sem röntgenlæknir á Landspítala og sem yfirlæknir frá árinu 2014.

Nanna Briem hefur verið ráðin forstöðumaður geðþjónustu

Nanna lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1994 og lauk sérfræðinámi í geðlækningum frá háskólasjúkrahúsinu í Ósló árið 2003. Hún hefur starfað sem geðlæknir á Landspítala síðan og frá árinu 2014 hefur hún verið yfirlæknir geðlækninga á meðferðargeðdeildinni á Laugarási og einnig yfirlæknir sérhæfðrar endurhæfingargeðdeildar frá 2016.

Runólfur Pálsson hefur verið ráðinn forstöðumaður lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu 

Runólfur lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1985, sérfræðinámi í lyflækningum frá Hartford Hospital og University of Connecticut árið 1991 og sérfræðinámi í nýrnalækningum frá Massachusetts General Hospital og Harvard Medical School árið 1996. Runólfur hefur starfað á Landspítala samfellt frá 1997 og gegnt þar ýmsum stjórnunarstöðum. Hann starfar einnig í hlutastarfi sem prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.

Vigdís Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður skurðstofa og gjörgæslna

Vigdís lauk hjúkrunarfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1998, diplómanámi í stjórnun heilbrigðisþjónustu frá Royal College of Nursing í London og meistaraprófi í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands árið 2007. Einnig hefur hún að baki nám og vottun í straumlínustjórnun. Vigdís hefur starfað á Landspítala frá árinu 2009 en einnig hefur hún starfað í heilbrigðisráðuneytinu og hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Undanfarin ár hefur Vigdís unnið sem verkefnastjóri og síðan verið framkvæmdastjóri aðgerðasviðs. 

Hildur Helgadóttir ráðin tímabundið forstöðumaður krabbameinsþjónustu

Ákveðið var að hætta við ráðningu í stöðu forstöðumanns krabbameinsþjónustu á grundvelli auglýsingar en spítalinn hefur náð samkomulagi við Hildi Helgadóttir hjúkrunarfræðing og verkefnisstjóra að hún gegni hlutverki forstöðumanns þjónustukjarnans tímabundið til eins árs.

Hildur útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1985, er með meistarapróf í hjúkrun frá Háskólanum í Calgary og meistarapróf í verkefnastjórnun frá verkfræðideild Háskóla Íslands. Hún hefur starfað á ýmsum deildum á Landspítala og m.a. gegnt stöðum sérfræðings í hjúkrun, deildarstjóra, hjúkrunarframkvæmdastjóra auk þess að vera hjúkrunarforstjóri á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2007 hefur Hildur verið innlagnastjóri og að undanförnu verkefnastjóri á Landspítala. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert