Turnarnir þrír í íslenskum spennusagnaheimi; Arnaldur Indriðason, Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson, hafa náð frábærum árangri á heimsvísu á liðnum árum.
Þau hafa samanlagt selt yfir 20 milljónir bóka og virðast vinsældir þeirra aukast ár frá ári, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Arnaldur hefur selt ríflega 14 milljónir bóka, Yrsa yfir fimm milljónir og Ragnar rauf nýverið milljón eintaka múrinn. Til samanburðar er talið að bækur nóbelsskáldsins Halldórs Laxness hafi alls selst í um tíu milljón eintökum.
Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir að það sé óneitanlega mjög merkilegt að íslenskir höfundar hafi náð slíkum árangri í sölu á heimsvísu. Hann telur að nokkrir þættir spili inn í vinsældir krimmahöfundanna en þó ekki síst mikil vinna. „Þau hafa sjálf lagt töluvert upp úr því að rækta góð samskipti við útgefendur og lesendur í þessum löndum,“ segir hann.