Elín Hirst sækir um starf útvarpsstjóra

Elín Hirst, fjölmiðlakona og fyrrverandi alþingismaður, hefur sótt um starf útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins.

Þetta tilkynnir Elín á Facebook, en umsóknarfrestur rennur út í kvöld eftir að hann var framlengdur um viku. Elín Hirst hefur víðtæka reynslu úr fjölmiðlum, en hún hefur starfað bæði fyrir RÚV og miðla 365. Um þessar mundir rekur hún sitt eigið framleiðslufyrirtæki, Elín Hirst Productions.

Ríkisútvarpið hefur gefið út að listi með nöfnum umsækjenda um stöðuna verði ekki gerður opinber að umsóknarfresti loknum. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hefur einnig sótt um stöðuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert