Miklar skemmdir hafa orðið á gistiheimilinu Blábjörgum á Borgarfirði eystri í óveðrinu sem nú gengur yfir landið. Samkvæmt starfsmanni gistiheimilisins hefur svo mikið brim varla sést, en gistiheimilið er staðsett í fjöruborðinu.
„Fyrir einu eða tveimur árum fór annar potturinn aðeins á ferð en það var ekkert á við þetta. Svo erum við vön að þurfa að sópa þara og grjót af pallinum en ekki svona,“ segir Elísabet Dögg Sveinsdóttir.
Eins og sjá má af myndum sem Elísabet hefur tekið fóru báðir heitu pottarnir á ferð auk þess sem flæddi inn í eina af íbúðum gistiheimilisins, með tilheyrandi þara og grjóti. „Það er bara alveg ótrúlegt að rúður skyldu ekki fara líka.“
„Það hefur ekkert verið eitthvað aftakaveður hérna, en það er svo rosalega mikið brim.“
Ekki verður unnt að meta tjónið almennilega fyrr en á morgun þegar veðrið verður gengið yfir. Elísabet segir ekki ólíklegt að pottarnir séu ónýtir, auk þess sem talsverðar skemmdir urðu á íbúðinni sem flæddi inn í.
Að sögn Elísabetar á að hvessa aftur í kvöld.