Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að skipa starfshóps fimm ráðuneyta sem falið er að meta hvaða aðgerðir séu færar til að efla innviði í flutnings- og dreifikerfi raforku og fjarskiptum til að tryggja að slíkir grunninnviðir séu sem best í stakk búnir til að takast á við ofsaveður eða aðrar náttúruhamfarir.
Fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu, að hópurinn muni, til viðbótar við öryggi í raforku og fjarskiptum, skoða samgöngur, byggðamál og dreifikerfi RÚV.
Það sé mat ríkisstjórnarinnar að öryggi í þessum samfélagslegu innviðum lúti að þjóðaröryggi. Í þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, frá 11. júní 2018, sé kveðið á um að flutningskerfi raforku sé hluti af grunninnviðum samfélagsins, með sambærilegum hætti og samgöngu- og fjarskiptainnviðir, og ein af mikilvægum forsendum fjölbreyttrar atvinnu- og byggðaþróunar.
Starfshópurinn mun beina athygli sinni sérstaklega að afhendingaröryggi raforku. Þannig verður kallað eftir skýrslum og greiningum af hálfu Landsnets og dreifiveitna á því tjóni á flutnings- og dreifikerfi raforku sem varð dagana 10. og 11. desember, hvernig fyrirtækin voru undirbúin, hvernig unnið var í samræmi við fyrirliggjandi viðbragðsáætlanir fyrirtækjanna, sem og hvað hefði betur mátt fara.
Starfshópnum er falið að greina upplýsingar og koma fram með tillögur um úrbætur sem geta eflt flutnings- og dreifikerfi raforku þannig að það geti betur mætt slíkum atburðum og þar með verði unnt að lágmarka það samfélags- og efnahagslega tjón sem hlýst af langvarandi og víðtæku rafmagnsleysi á tilteknum landsvæðum. Hluti af vinnu starfshópsins er jafnframt að leggja mat á tiltækt varaafl í landinu við slíkar aðstæður og stýringu þess. Jafnframt er starfshópnum falið að taka til umfjöllunar og úrvinnslu þær tillögur sem liggja fyrir um einföldun leyfisveitingarferla að því er framkvæmdir í flutningskerfinu varðar.
Benedikt Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, mun leiða vinnu starfshópsins. Miðað er við að hann skili tillögum sínum fyrir 1. mars 2020.