Tengivirki í Hrútatungu og Glerárskógum leysti aftur út klukkan 20:40 vegna seltu í tengivirki Landsnets í Hrútatungu. Hrútafjörður, Laugabakki og Miðfjörður eru án rafmagns og einnig eru rafmagnstruflanir í dreifikerfinu tengt aðveitustöðinni í Glerárskógum. Verið er að reyna koma rafmagni á þar sem hægt er.
Búast má við áframhaldandi truflunum og rafmagnsleysi í nótt á meðan tengivirkið á aðveitustöðinni í Hrútatungu verður hreinsað.
Svo til öll heimili á veitusvæði RARIK eru komin með rafmagn. Margir eru þó tengdir varaaflsvélum. Sumarbústaðir og heimili sem hafa verið rýmd gætu enn verið rafmagnslaus. Við viljum biðja notendur sem eru tengdir varaafli að spara rafmagn eins og kostur er.
RARIK mun þurfa að keyra varaafl þangað til búið er að gera við flutningskerfi Landsnets. Enn er mikið af bilunum í dreifikerfi RARIK sem taka mun nokkra daga að lagfæra og búast má við truflunum á afhendingu rafmagns á meðan þetta ástand varir. Einnig má búast við mögulegum skömmtunum á rafmagni þegar atvinnulífið fer í gang eftir helgina.
Norðausturhornið:
Enn eru keyrðar varaaflsvélar á Raufarhöfn, Þórshöfn og Bakkafirði. Flestir á þessu svæði eru með rafmagn. Viðgerðir standa yfir á línu RARIK á Melrakkasléttu og er búist við að þeim ljúki í dag.
Tjörnes:
Viðgerð er lokið á Tjörnesi og komið er rafmagn á alla bæi.
Þingeyjarsveit
Hálfur Reykjadalur er rafmagnslaus en verið er að leita að bilun.
Fnjóskadalur:
Einhverjar bilanir en þeir sem þurfa hafa varaafl.
Grýtubakkahreppur:
Lína frá Nolli að Sveinbjarnargerði er öll niðri og varaafl er keyrt þar sem þörf er á.
Árskógssandur:
Vegna bilunar á Dalvíkurlínu er rafmagn nú tekið frá Rangárvöllum sem veldur lágri spennu og lélegum spennugæðum.
Hrísey:
Keyrt er á varaafli vegna bilunar á Dalvíkurlínu.
Svarfaðardalur:
Allur Svarfaðardalur er kominn með rafmagn fyrir utan þrjár spennistöðvar þar sem ekki er föst búseta. Keyrt er á varaafli frá Dalvík.
33 kV lína frá Dalvík til Árskógsands:
Línan er slitin og mikið sliguð. Mikill halli er á staurum.
Dalvík:
Búið er að tengja tiltækt varaafl á Dalvík. Varðskipið Þór er að framleiða fyrir alla almenna notkun.
Siglufjörður:
Komið er rafmagn frá Skeiðsfossvirkjun, allir almennir notendur með rafmagn.
Skagafjörður: