Yfir 200 skjálftar hafa orðið á Reykjanesskaga í dag og hafa tilkynningar borist til jarðvársviðs Veðurstofu Íslands um að stærsti skjálftinn hafi fundist á höfuðborgarsvæðinu.
Í morgun klukkan 07:59 varð skjálfti af stærð 3,5 við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga. Jarðskjálftar eru algengir á þessu svæði.
Stærsti eftirskjálftinn reið yfir klukkan 8:26 í morgun og reyndist hann vera 2,8 stig. Upptök hans, líkt og stóra skjálftans, voru rúma 3 km suðaustur af Fagradalsfjalli.