Bílvelta varð á Álftanesvegi um fimmleytið í dag. Bíllinn lenti á hvolfi utan vegar.
Einn maður var um borð, með meðvitund, og var hann fluttur á slysadeild. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu eru meiðsli hans talin minniháttar.
Tveir bílar rákust saman á Reykjanesbraut við Vífilsstaðaveg um tvöleytið í dag. Minniháttar slys urðu á fólki.