Stekkjarstaur heimsótti börnin í Kulusuk

Ljósmynd/Aðsend

Stekkjarstaur lagði leið sína út fyrir landsteinana í dag og heimsótti Kulusuk á Grænlandi á vegum Kalak, Hróksins og Air Iceland Connect. Mætti hann klyfjaður gjöfum frá íslenskum velunnurum, jólanammi frá Góu og með spjaldtölvur frá Heiðbjörtu Ingvarsdóttur, Grænlandsfara Hróksins og stjórnarkonu í Kalak, til allra elstu nemendanna.

Ljósmynd/Aðsend

„Stekkjarstaur var vel fagnað á flugvellinum í Kulusuk og flest börnin í bænum töldu ekki eftir sér að keifa gegnum snjóinn, þennan rúmlega hálftíma sem spássitúr úr þorpinu tekur að labba á völlinn. Flugfólkið frá Air Iceland Connect, þau Frímann Svavarsson og Ingibjörg Matthíasdóttir, hjálpuðu Stekkjarstaur við bráðskemmtilega athöfn á flugvellinum, þar sem gleðin og vináttan voru í fyrirrúmi,“ segir í fréttatilkynningu.

Ljósmynd/Aðsend

Enn fremur segir að þetta hafi verið níunda og síðasta ferð liðsmanna Hróksins og Kalak til Grænlands á þessu ári og að umsvifin hafi aldrei verið meiri. Að auki hafi félögin sent mikið af vönduðum fatnaði, skóm og öðrum gjöfum til þessara næstu nágranna Íslands. „Árið 2020 er langt komið á teikniborðum íslenskra Grænlandsvina, og áfram verður haldið á fullri ferð að styrkja tengsl landanna og skapa ánægjustundir fyrir börn og fullorðna.“

Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert