Mengun frá flugeldum raunverulegt vandamál

Frá flugeldaskoti um síðustu áramót.
Frá flugeldaskoti um síðustu áramót. mbl.is/Árni Sæberg

Veruleg aukning varð á hlutfalli ýmissa efna í svifrykinu um síðustu áramót en mest varð aukningin hjá efnum sem mætti kalla einkennisefni fyrir mengun frá flugeldum. Þetta kemur fram, í skýrslu Umhverfisstofnunar um niðurstöðu mælinga á efnainnihaldi svifryks um áramótin 2018-2019. 

Sýnum var safnað saman á loftgæðamælistöðvunum við Grensásveg í Reykjavík og Dalsmára í Kópavogi á tímabilinu 27. desember 2018 – 10. janúar 2019. 

Fram kemur að ryk með þessa efnasamsetningu verði að teljast varasamt. Stór hluti þess sé mjög fínn en mengunarálag vegna brennisteins um áramót jafngildi álagi hefðbundins mánaðar.

„Umhverfisstofnun hvetur alla til hófsemi í notkun flugelda og undirstrikar að mengun frá flugeldum er raunverulegt vandamál hér á landi. Þar er svifrykið það sem veldur mestum heilsufarsáhrifum. Stofnunin bendir á að loftmengun hefur neikvæð áhrif á þá sem fyrir henni verða, sérstaklega viðkvæma hópa eins og börn, aldraða og fólk sem er veikt fyrir. Svifryk veldur ekki einungis óþægindum heldur skerðir lífsgæði margra,“ segir í tilkynningu Umhverfisstofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert