Vegum lokað vegna veðurs

Öxnadalsheiði er ófær.
Öxnadalsheiði er ófær. mbl.is/Styrmir Kári

Öxnadalsheiði hefur verið lokað vegna veðurs og verður hún ekki opnuð aftur í kvöld. Gul viðvörun er í gildi á Ströndum og Norðurlandi, Austurlandi, Suðausturlandi og Miðhálendi.

Fram kemur á vefsíðu Vegagerðarinnar að hvass vindur sé á landinu og einnig ofankoma norðan- og austantil. 

Auk þess er búið að loka Siglufjarðarvegi, veginum um Víkurskarð og Fjarðarheiði vegna veðurs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert