Viðkvæm staða og vond veðurspá

Ljósmynd Rarik

Staðan á flutningskerfi rafmagns er enn víða viðkvæm nú níu dögum eftir að ofsaveðrið gekk yfir og veðurspá fyrir austan ekki góð, samkvæmt upplýsingum frá Landsneti.

Yfirlit yfir stöðu mála

Suðurnesjalína 1
Fundist hefur skemmdur einangrari í línunni við Fitjar. Ástand hans er þannig að fara þarf í viðgerð og er áætlað að línan fari úr rekstri í um þrjár klukkustundir frá klukkan 10. Fyrirhugað er að hafa Reykjanes í sjálfstæðri einingu aðskilið frá meginflutningskerfinu á meðan viðgerð stendur. Ef allt gengur að óskum eiga notendur ekki að finna fyrir truflunum.

Tengivirkið í Hrútatungu

Tengivirkið var hitamyndað í gær og enn þá mælist töluverð selta. Metið verður nánar í dag hvort fara þurfi í frekari hreinsun á virkinu.

Dalvíkurlína 1

Viðgerð lauk í gær og var línan spennusett um kl. 18:30. Rafmagn frá flutningskerfinu er því komið á Dalvík.

Kópaskerslína 1

Viðgerð gekk vel í gær og hafa nú allir staurar verið reistir. Í gærkvöldi komu 10 menn til viðbótar í hópinn frá viðgerðarhóp Dalvíkurlínu. Spáin á svæðinu fyrir föstudaginn er ekki góð og er því stefnt á að nýta daginn í dag eins vel og hægt er. Enn er áætlað að viðgerð verði lokið um helgina.

Fljótsdalslína 4

Bilun varð á línunni í gær þegar festing, sem tengir skálakeðju, brotnaði. Við nánari skoðun í gær kom í ljós að mastrið hefur skemmst í toppinn og fara þarf í lagfæringar á því fyrst. Viðgerð gæti því tekið nokkra daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert