Flestar umsóknir frá Venesúela

43 Venesúelamenn sóttu um vernd hér á landi í nóvember …
43 Venesúelamenn sóttu um vernd hér á landi í nóvember sl. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Yfir helmingur umsækjenda um alþjóðlega vernd hér á landi í nóvember, eða 43 einstaklingar, er frá Venesúela en alls bárust Útlendingastofnun 78 umsóknir um vernd þann mánuðinn. Þetta kemur fram í yfirliti sem stofnunin birti á miðvikudag.

Er þetta töluverð fjölgun umsókna þaðan en 144 Venesúelamenn hafa nú sótt um vernd hér á landi það sem af er ári og eru þeir nú fjölmennastir fólks af einstöku þjóðerni sem sótt hefur um vernd á árinu. Til samanburðar hafa 128 Írakar, sem undanfarin ár hafa verið stærsti hópur umsækjenda sem ekki koma frá öruggum upprunaríkjum, sótt um vernd á Íslandi.

Þórhildur Hagalín, upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar, segir í Morgunblaðinu í dag að fjölgunin sé í samræmi við það sem er að gerast í öðrum Evrópuríkjum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert