Árleg friðarganga á Þorláksmessu fór fram á þremur stöðum á landinu í dag. Í Reykjavík var safnast saman á Laugavegi neðan Snorrabrautar og gengið af stað klukkan 18. Hamrahlíðarkórinn og kór Menntaskólans við Hamrahlíð gengu fremst og sungu viðeigandi lög.
Í göngulok var stuttur fundur á Austurvelli þar sem Drífa Snædal, forseti ASÍ, flutti ávarp og Eyrún Ósk Jónsdóttir skáld las friðarljóð. Fundarstjóri var Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna 78.
Á sama tíma var friðarganga á Ísafirði en á Akureyri hófst gangan kl. 20.
Hamrahlíðarkórinn og kór Menntaskólans við Hamrahlíð gengu fremst og sungu viðeigandi lög.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Eyrún Ósk Jónsdóttir skáld las friðarljóð.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Friðarganga á Þorláksmessu 2019.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Falleg ljós voru tendruð í friðargöngunni á Þorláksmessu.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Frá árinu 1980 hefur Samstarfshópur friðarhreyfinga efnt til friðargöngu niður Laugaveginn á Þorláksmessu.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Fundarstjóri var Daníel E. Arnarsson framkvæmdastjóri Samtakanna 78.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Friðarganga á Þorláksmessu 2019.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Friðarganga á Þorláksmessu 2019.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Drífa Snædal forseti ASÍ flutti ávarp í lok friðargöngunnar.
mbl.is/Kristinn Magnússon