Björgunarsveitin Víkverji sem leitaði að Rimu Grunskyté Feliksasdóttur, sem talin er hafa fallið í sjóinn við Dyrhólaey, hefur lokið leit í bili. Leiðinlegt veður og lítið skyggni á svæðinu gerir leitaraðilum erfitt fyrir.
Leitarsvæðið nær frá Vík og út að Skógum og leitað hefur verið í fjörum.
„Það var voðalega lítið leitað í dag. Björgunarsveitin Víkverji fór yfir svæðið í dag en við ætlum að taka stöðuna í kvöld með morgundaginn eða laugardaginn,“ segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.
„Það er búið að vera leiðinlegt veður á svæðinu og lítið skyggni þannig að þetta var lágstemmt í dag og væntanlega á morgun líka miðað við veðurspánna,“ bætti hann við.
Eins og áður hefur komið fram er talið að Rima hafi fallið í sjóinn við Dyrhólaey og beinist leitarstarf því að sjónum og ströndinni.
Rima flutti nýlega á Hellu en hún var áður búsett í Vík í Mýrdal. Ekkert hefur spurst til hennar síðan á föstudagskvöld í síðustu viku.