Grunaður um kynferðisbrot

Karlmaður á sextugsaldri var á jóladag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra daga gæsluvarðhald, eða til 29. desember, á grundvelli rannsóknar- og almannahagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Gæsluvarðhaldið er veitt í þágu rannsóknar lögreglunnar vegna gruns um kynferðisbrot og fleiri brot. Maðurinn var handtekinn í heimahúsi á jóladag, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en ekki verða veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert