Hildur hlýtur bjartsýnisverðlaunin

Hildur Guðnadóttir, tónskáld og sellóleikari, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2019, menningarverðlaun …
Hildur Guðnadóttir, tónskáld og sellóleikari, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2019, menningarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981. mbl.is/Styrmir Kári

Hildur Guðnadóttir, tónskáld og sellóleikari, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2019 sem afhent voru á Kjarvalsstöðum í dag. Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin, sem eru áletraður gripur úr áli frá ISAL í Straumsvík og ein milljón króna í verðlaunafé. 

Guðni Franzson, faðir Hildar, tók við verðlaununum fyrir hennar hönd en Hildur er stödd erlendis. 

Frá verðlaunaafhendingunni í dag. Guðni Franzson, faðir Hildar, tók við …
Frá verðlaunaafhendingunni í dag. Guðni Franzson, faðir Hildar, tók við verðlaununum fyrir hennar hönd. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, var viðstödd athöfnina en forseti Íslands hefur verið verndari verðlaunanna frá því að þau voru fyrst afhent árið 1981. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti verðlaunin og við hlið hans er Sigurður Þór Ásgeirsson, staðgengill forstjóra ISAL. mbl.is/Árni Sæberg

Bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981. Upphafsmaður þeirra var danski athafnamaðurinn Peter Bröste en ISAL-álverið í Straumsvík hefur verið bakhjarl verðlaunanna frá því að Bröste dró sig í hlé árið 2000. Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari verðlaunanna.

Hildur Guðnadóttir er tónskáld og sellóleikari en hefur einnig sungið og starfað sem kórstjóri. Hún hefur leikið í fjölmörgum hljómsveitum og spannar tónlistin nánast allt svið tónlistar. Hildur lauk námi í Listaháskóla Íslands í tónsmíði og nýmiðlun. Hún fór síðan í framhaldsnám í tónsmíðum við Universität der Künste í Berlín.

Hildur hefur sjálf gefið út fjórar hljómplötur sem allar hlutu allar góðar viðtökur. Þá hefur hún komið að gerð yfir 20 hljómplatna í samstarfi við annað tónlistarfólk. Sem tónskáld hefur Hildur samið tónlist fyrir leikhús, dansverk, sjónvarp og kvikmyndir. 

Að undanförnu hefur hún einkum einbeitt sér að tónlist fyrir sjónvarp og kvikmyndir og hlotið mikið lof fyrir. Kvikmyndagagnrýnandi New York Times spáir því til að mynda að Hildur hljóti Golden Globe-verðlaun fyrir tónlist sína í Joker. 

Tónlist Hildar í sjónvarpsþáttunum Chernobyl hefur sömuleiðis hlotið mikið lof, en fyrir hana hlaut hún Emmy-verðlaunin. 

Við athöfnina léku Skúli Sveinsson og Ólöf Arnalds, en þau hafa verið samstarfsfólk Hildar. Í dómnefnd Íslensku bjartsýnisverðlaunanna eru Þórunn Sigurðardóttir, Magnús Geir Þórðarson, Rannveig Rist og Örnólfur Thorsson. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert