Jarðfræðingurinn Arnþór Óli Arason hefur gengið 43 þúsund kílómetra á sautján árum. Samsvarar það rúmlega ummáli jarðar um miðbaug og er hann því kominn á annan hring umhverfis hnöttinn.
Arnþór hefur gengið af ástríðu í mörg ár, sérstaklega eftir að hann fór á eftirlaun fyrir fimm árum. Hann gengur mest um Reykjavík og Reykjanesskagann en einnig víðar um landið. Þá gengur hann töluvert víðar um Evrópu. Hann er mikill ná
kvæmnismaður og skráir ferðir sínar í tölvu, merkir inn á kort og útbýr myndabækur um leiðirnar.
Árið 2007 setti Arnþór sér það takmark að ganga allar götur Reykjavíkur og lauk því verkefni fyrir nokkru. „Ég bíð eftir að nýjar götur verði göngufærar og fer þá af stað,“ segir hann í samtali í SunnudagsMogganum í dag.
Arnþór samsinnir því að hann sé líklega eini maðurinn sem gengið hefur allar götur Reykjavíkurborgar.