Pétur Oddbergur Heimisson og Erin Jade Turner stóðu fyrir uppákomu á Kex hosteli í kvöld þar sem brugðist var við ákalli ástralskra dýraverndunarsamtaka með því að prjóna poka fyrir pokadýr í Ástralíu sem hafa farið illa út úr gróðureldunum.
Sérstaklega er átt við þau dýr sem eru móðurlaus.
Prjónarnir voru því teknir upp í kvöld og prjónað af krafti fyrir pokadýrin, sem þurfa að jafna sig eftir átökin við gróðureldana.
Um hálfur milljarður dýra hefur týnt lífinu í skógareldum sem nú geisa í Ástralíu. Stór hluti þessara dýra eru pokadýr og eru mörg dæmi um að pokadýr hafi drepist frá ungum afkvæmum sínum.