Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun sem átti sér stað í janúar árið 2018.
Hann var einnig dæmdur til að greiða brotaþola 1,8 milljónir króna í miskabætur, auk vaxta. Í einkaréttarkröfu var farið fram á að hann greiddi brotaþola 2,5 milljónir króna í bætur.
Málið var dómtekið 13. desember og var höfðað með ákæru héraðssaksóknara. Fram kemur í ákærunni að maðurinn hafi án samþykkis konunnar klætt hana úr sokkabuxum og nærfötum og haft við hana samræði þar sem hún svaf í sófa í stofu og þannig notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga.
Nauðgunin átti sér stað í heimahúsi að loknu þorrablóti. Þar var konan gestkomandi á heimili vinkonu sinnar. Þar var einnig fyrrverandi sambýlismaður vinkonunnar, sem var ákærður í málinu. Þau höfðu fyrr um kvöldið verið að skemmta sér á þorrablóti en farið heim til vinkonunnar eftir blótið þar sem þau drukku áfengi og hlustuðu á tónlist.
Konan vaknaði síðar um morguninn, að hennar sögn, með líðan og minningar um að ákærði hefði klætt hana úr að neðan og haft við hana samfarir. Maðurinn neitaði sök.
Í niðurstöðum dómstólsins kemur fram að við ákvörðun refsingar beri að líta til þess að um var að ræða mjög alvarlegt brot sem beindist gegn kynfrelsi ungrar konu, sem var vinkona ákærða, og í aðstæðum þar sem hún átti að vera örugg. Var því um að ræða mikinn trúnaðarbrest. Þetta horfi til refsiþyngingar.
Auk greiðslu miskabóta þarf maðurinn að greiða allan sakarkostnað málsins til ríkissjóðs, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, 1,2 milljónir króna, og þóknun réttargæslumanns brotaþola, 1.159.400 krónur.