Hilmar Elísson valinn Mosfellingur ársins

Hilmar Elísson.
Hilmar Elísson. Ljósmynd/Mosfellingur

Hilmar Elísson hefur verið útnefndur Mosfellingur ársins 2019, en Hilmar bjargaði sundlaugargesti frá drukknun í Lágafellslaug í janúar á síðasta ári. 

Hilmar er fastagestur í Lágafellslaug og var að synda í lauginni 28. janúar 2019 þegar hann kom auga á mann á botni laugarinnar og sá strax að ekki væri allt með felldu. 

Ég kafaði eftir manninum, það tókst ekki í fyrstu tilraun en í annarri tilraun náði ég til hans. Ég kallaði svo á hjálp við að koma manninum upp á bakkann,“ segir Hilmar sem var svo sannarlega réttur maður á réttum stað.

„Það var heppilegt að á staðnum var maður sem starfað hefur sem slökkviliðsmaður í fjöldamörg ár og kunni vel til verka í svona aðstæðum. Okkur tókst að koma manninum upp á bakkann og þá hófust strax lífgunartilraunir. Það leið alla vega mínúta þar til hann fór að sýna smá lífsmark. Sjúkraflutningamennirnir voru fljótir á staðinn enda gott að vita af þeim í nágrenninu,“ segir Hilmar en nýlega opnaði slökkvistöð við Skarhólabraut, skammt frá Lágafellslaug.

Hilmar segir viðbrögð sín hafa verið ósjálfráð og að allir sem hafi komið að björguninni hafi staðið sig með prýði. „Ég var bara einn hlekkur í keðju sem vann gott verk,“ segir Hilmar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert