Stór snjóflóð féllu á Suðureyri og Flateyri á tólfta tímanum í kvöld með afar skömmu millibili. Á Suðureyri varð töluvert eignatjón, en engin slys á fólki, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Þar féll flóð úr hlíðinni til móts við byggðina og olli því að flóðbylgja myndaðist í Súgandafirði og gekk inn á Suðureyri.
Á Flateyri runnu tvö flóð, hvort sínu megin við snjóflóðavarnagarðana ofan við byggðina. Annað þeirra endaði á smábátahöfninni í bænum og virðist hafa valdið miklu þar tjóni.
Annað snjóflóðið á Flateyri lenti á einu húsi, þaðan var unglingsstúlku bjargað og er hún heil á húfi, ekki alvarlega slösuð, samkvæmt tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna.
Fólk á Flateyri beðið um að halda kyrru fyrir heima að svo stöddu og íbúar á Suðureyri eru beðnir um að halda sig frá höfninni.
Verið er að rýma einhver hús og bæði þyrla Landhelgisgæslunnar og varðskipið Þór eru á leið til Flateyrar, en varðskipið var statt á Ísafirði. 35 björgunarsveitarmenn eru á leiðinni á Flateyri með varðskipinu.
Rauði kross Íslands er í viðbragðsstöðu og minnir á að hjálparsíminn 1717 er opinn.
Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, sagði við mbl.is skömmu eftir miðnætti að flóðin hefðu öll fallið á svipuðum tíma, mögulega með innan við tveggja mínútna millibili.
Hann sagði að svo virðist sem flóðin tvö á Flateyri hafi „eitthvað smitast yfir garðinn“ og á þar við ofanflóðavarnirnar, sem virðast hafa forðað byggðinni á Flateyri frá hörmungum í kvöld.
Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð rétt fyrir miðnætti vegna snjóflóðanna þriggja. Búið er að boða út alla viðbragðsaðila á svæðinu.
Samkvæmt Stundinni, sem greindi fyrst frá flóðunum á Flateyri, er talið að margir bátar hafi sokkið er flóð skall á höfninni. Þar er því lýst að drunur hafi heyrst um allt þorpið þegar flóðin féllu og talið sé hugsanlegt að snjóflóðavarnir hafi stýrt flóðinu frá byggðinni.