Unglingsstúlku var bjargað úr öðru snjóflóðanna sem féll á Flateyri í kvöld, en hún var grafin upp af björgunarsveitarmönnum. Stúlkan er heil á húfi, ekki alvarlega slösuð. Hún var í húsi í bænum sem varð fyrir öðru snjóflóðanna, því síðara sem féll á tólfta tímanum í kvöld. RÚV greindi fyrst frá þessu.
Íbúar á Flateyri hafa verið beðnir um að halda kyrru fyrir á heimilum sínum.