Gera ráð fyrir að opna Flateyrarveg klukkan 17

Vegurinn að Flateyri hefur verið lokaður undanfarna daga vegna ófærðar …
Vegurinn að Flateyri hefur verið lokaður undanfarna daga vegna ófærðar og snjóflóðahættu. mbl.is/RAX

Starfsmenn Vegagerðarinnar vinna nú að því að ryðja Flateyrarveg svo hægt verði að komast landleiðina að Flateyri, en vegurinn hefur verið ófær undanfarna daga og lokaður vegna snjóflóðahættu.

Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er stefnt að því að vegurinn opni núna klukkan 17:00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert