Bíll fór í sjóinn við Fornubúðir við Hafnarfjarðarhöfn í kvöld. Þrír voru í bílnum. Lögregla, sjúkralið og slökkvilið voru kölluð út og samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er búið að ná þremenningunum úr bílnum.
Verið er að flytja fólkið á spítala til aðhlynningar en ekki fengust upplýsingar um líðan þess að svo stöddu.
Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni voru fimm kafarar frá séraðgerðadeild Landhelgisgæslunnar kallaðir út voru þeir enn á staðnum á ellefta tímanum.
„Mjög alvarlegt slys varð í Hafnarfirði á tíunda tímanum í kvöld þegar bifreið fór fram af Óseyrarbryggju og hafnaði í sjónum. Tilkynning um slysið barst kl. 21.07 og fór fjölmennt lið viðbragðsaðila þegar á staðinn, en vinna á vettvangi stendur enn yfir,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.
Þar segir enn fremur að þeir sem voru í bílnum hafi verið fluttir á slysadeild og að frekari upplýsingar verði ekki veittar að svo stöddu.