Ferðamennirnir sem slösuðust þegar jeppi og jepplingur rákust saman við Háöldukvísl á Skeiðarársandi, miðja vegu á milli Núpsstaðar og Skaftafells, á öðrum tímanum í dag, eru frá Suður-Kóreu og Frakklandi.
Þetta staðfestir Grímur Hergeirsson, settur lögreglustjóri á Suðurlandi, við mbl.is. Vinnu á vettvangi lauk á sjöunda tímanum og búið er að opna fyrir umferð um Suðurlandsveg.
Hann segir enn fremur að svo virðist sem annar bíllinn hafi ekið yfir á öfugan vegarhelming og lent framan á hinum sem kom úr gagnstæðri átt.
Skyggni var ágætt á þessum slóðum í dag en það var hvasst og fljúgandi hálka.
Grímur kvaðst ekki geta veitt nánari upplýsingar um líðan fólksins en fram hefur komið að fjórir eru alvarlega slasaðir eftir áreksturinn, þar af þrjú börn.
Börnin eru á aldrinum 5-10 ára. Fjórði sem slasaðist alvarlega, fullorðinn einstaklingur, sat fastur í öðrum bílnum og beita þurfti klippum til að ná honum út.