Björgunarsveitir luku í dag við mokstur á snjó úr húsinu í Ólafstúni 14 á Flateyri en annað snjóflóðið úr fjöllunum við bæinn á þriðjudagskvöldið fór yfir húsið og færði alla persónulega muni fjölskyldunnar þaðan. Auk þess byrgði björgunarsveitarfólk fyrir glugga og lokaði húsinu.
Þetta kemur fram í stöðuskýrslu frá samhæfingarstöð almannavarna vegna snjóflóða á Flateyri og í Súgandafirði.
Alma Sóley Ericsdóttir Wolf, 14 ára, var grafin undir snjófargi í herbergi sínu í Ólafstúni 14 í um það bil fjörutíu mínútur þar til björgunarsveitarmenn náðu til hennar. Móðir hennar og systkini komust út af sjálfsdáðum.
Björgunarsveitarfólk hefur verið að störfum á Flateyri í dag og aðstoðað íbúa við snjómokstur. Lögð hefur verið áhersla á að moka snjó frá húsum og hreinsa þök þar sem von er hláku næstu daga.
Áhöfn á björgunarbát björgunarsveitarinnar á Flateyri hefur unnið með áhöfn varðskipsins Þórs við að hreinsa upp lausamuni sem eru á floti í og við höfnina. Hluti björgunarsveitarfólks sem sent var frá höfuðborgarsvæðinu fyrr í vikunni fór með flugi til baka síðdegis í dag. Sjö manns verða áfram á Flateyri til stuðnings við björgunarsveitir á svæðinu vegna veðurspár á sunnudaginn.
Appelsínugul viðvörun verður í gildi á Vestfjörðum á sunnudag en spár gera ráð fyrir suðaustanstormi með mikilli rigningu eða slyddu og hlýnandi veðri.