Tuttugu og sex sækjast eftir stöðu framkvæmdastjóra nýrra landshlutasamtaka á Norðurlandi eystra. Líkt og mbl.is greindi frá fyrir helgi var Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, meðal umsækjenda í fyrstu en hætti síðar við að sækjast eftir starfinu og tók ákvörðun um að sitja á þingi út kjörtímabilið hið minnsta.
Samtökin fengu nýverið nafn: Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, en þau urðu til með samruna Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum.
Hér má sjá lista yfir umsækjendurna 26, en þar má meðal annars finna forstjóra Fiskistofu, bílasala, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands og forstjóra Kaffi kú.
- Agnes Arnardottir verkefnastjóri
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttir alþingismaður
- Arnar Páll Ágústsson 1. stýrimaður
- Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri
- Berglind Ólafsdóttir, ráðgjafi og verkefnastjóri
- Björn S. Lárusson verkefnastjóri
- Daníel Snær Sigfússon bílasali
- Eyþór Björnsson forstjóri
- Friðrik Bjarnason sérfræðingur
- Grzegorz Karweck starfsmannastjóri
- Gunnar Atli Fríðuson iðnaðarmaður
- Haukur Logi Jóhannsson, sjálfstætt starfandi og meistaranemi
- Helga Hrönn Óladóttir framkvæmdastjóri
- Jón Hrói Finnsson stjórnsýslufræðingur
- Jón Ólafur Gestsson hagfræðingur
- Magnús Jónsson viðskiptafræðingur
- Ólafur Kjartansson ráðgjafi
- Pétur Snæbjörnsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
- Reinhard Reynisson framkvæmdastjóri
- Sesselja Ingibjörg Barðdal, forstjóri Kaffi Kú
- Sigmundur Einar Ófeigsson framkvæmdastjóri
- Silja Jóhannesdóttir verkefnastjóri
- Snæbjörn Sigurðarson, sjálfstætt starfandi verkefnastjóri
- Tryggvi Rúnar Jónsson, sjálfstætt starfandi sérfræðingur
- Þórarinn Egill Sveinsson, verkefnastjóri og ráðgjafi
- Ögmundur Knútsson ráðgjafi